Anmeldung Registrierung
Auto Hell Dunkel
Erweiterte Suche

Í ljósi sögunnar Archiv

366 Episoden
41 Minuten
Í þættinum er fjallað um sögu Dönsku Vestur-Indía, nýlendu Danmerkur í Karíbahafi, og Queen Mary Thomas, svarta verkakonu sem leiddi blóðuga uppreisn gegn dönskum yfirvöldum á eyjunum 1878, en nýlega var reist stytta af henni í Kaupmannahöfn.

39 Minuten
40 Minuten
Í þættinum er fjallað um borgina sögufrægu Timbúktú í norðanverðu Malí. Þegar vígamenn íslamista tóku borgina yfir á vormánuðum 2012 tókst bókavörðum borgarinnar á nær ótrúlegan hátt að forða þúsundum ómetanlegra fornhandrita frá glötun.
41 Minuten
Í þættinum er fjallað um Alberto Fujimori, forseta Perú frá 1990 til ársins 2000. Fujimori, sonur japanskra innflytjenda til Perú, naut mikillar hylli á fyrstu árum valdatíðar sinnar, en undir lok hennar kom margt misjafnt í ljós um stjórnarhætti hans.
38 Minuten
Í þættinum er fjallað um tvö ljón, sem herjuðu á verkamenn sem lögðu járnbraut fyrir breska heimsveldið í Kenía undir lok nítjándu aldar, og tilraunir bresks herforingja til að ráða niðurlögum ljónanna.
40 Minuten
Í þættinum er fjallað um mál Rússans Alexander Litvinenko, fyrrverandi leyniþjónustumanns og andstæðings rússneskra stjórnvalda, sem lést í Lundúnum í nóvember 2006 eftir að honum var byrlað geislavirkt efni í tebolla.
40 Minuten
28. febrúar 1993 ætluðu útsendarar Áfengis-, tóbaks- og skotvopnaeftirlits Bandaríkjanna að kanna grunsemdir um að liðsmenn fámenns kristins trúarsafnaðar, sem hélt til á búgarði fyrir utan borgina Waco í Texas, hefðu ólögleg skotvopn undir höndum. Aðgerðin endaði með skotbardaga og blóðbaði. Umsátur bandarísku alríkislögreglunnar um búgarðinn átti svo eftir að standa í fimmtíu daga.

Jedwabne

44 Minuten
Í þættinum er fjallað um fjöldamorð á Gyðingum í pólska smábænum Jedwabne í miðri seinni heimsstyrjöld, 10. júlí 1941, og umræðu sem kviknaði í kjölfarið af útgáfu bókar um fjöldamorðin í Póllandi, sextíu árum síðar.
40 Minuten
Í þættinum er fjallað um uppvöxt Benjamíns Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og leið hans til valda. Netanyahu eða „Bíbí“ eins og hann er gjarnan kallaður ólst að stórum hluta upp í Bandaríkjunum, og tók þar sín fyrstu skref á braut stjórnmála í ísraelsku utanríkisþjónustunni. Hann hefur verið umdeildur frá upphafi ferilsins en ekki síst var það hörð andstaða við Óslóar-friðarsamningana sem kom honum í forsætisráðherrastólinn í fyrsta skiptið 1995.

Korean Air 858

39 Minuten
29. nóvember 1987 hvarf suðurkóresk farþegaþota á leið frá Bagdad til Seoul skyndilega í hafið á miðri leið og 115 manns um borð fórust. Undirbúningur stóð þá sem hæst fyrir fyrstu Ólympíuleika Suður-Kóreu sem fara áttu fram í Seoul sumarið 1988. Grunur vaknaði því fljótt hvort óvinaríkið Norður-Kórea hefði með einhverjum hætti grandað þotunni til að spilla fyrir Ólympíuleikunum.
41 Minuten
Í þættinum er fjallað um mann sem hefur verið kallaður hinn eini sanni sölumaður dauðans, og hættulegasti maður heims: pakistanska kjarnorkuvísindamanninn AQ Khan, sem smíðaði fyrstu kjarnorkusprengja Pakistans með stolinni tækni og seldi svo ríkjum á borð við Íran og Norður-Kóreu kjarnorkutækni.
38 Minuten
Fyrir fimmtán árum, 1. febrúar 2003, fórst geimskutla bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, Kólumbía, þegar hún var á leið til lendingar í Flórída að loknum sextán daga leiðangri. Þegar örfáar mínútur voru til lendingar splundraðist skutlan í tugþúsund mola yfir suðvestanverðum Bandaríkjunum og allir um borð, sjö geimfarar, fórust. Í þættinum er fjallað um hinstu ferð Kólumbíu og rannsóknina á tildrögum slyssins sem á eftir kom.
41 Minuten
Í þriðja þætti um sögu Kongó í Mið-Afríku er fjallað um valdatíð einræðisherrans Mobutu Sese Seko, sem nefndi landið Saír og gerði það gjaldþrota með eyðslusemi sinni, og vargöldina sem tók við af honum, þegar grannríki Kongó réðust inn í landið og komu af stað einni mannskæðustu styrjöld síðari ára.

Kongó-krísan

40 Minuten
Í þættinum er fjallað áfram um sögu Kongó í miðri Afríku. Landið fékk sjálfstæði frá Belgum í júní 1960, en aðeins örfáum vikum síðar var landið allt í algjörri upplausn.
40 Minuten
Í þættinum er fjallað um sögu Fríríkisins Kongó, gríðarstórrar einkanýlendu sem Leópold II Belgakonungur kom sér upp í miðri Afríku undir lok nítjándu aldar. Innfæddir Kongómenn máttu þola þá hryllilega glæpi, þrælkunarvinnu og arðrán en konungurinn græddi á tá og fingri.