Anmeldung Registrierung
Erweiterte Suche
Fyrir fimmtán árum, 1. febrúar 2003, fórst geimskutla bandarísku
geimferðastofnunarinnar NASA, Kólumbía, þegar hún var á leið til
lendingar í Flórída að loknum sextán daga leiðangri. Þegar örfáar
mínútur voru til lendingar splundraðist skutlan í tugþúsund mola
yfir suðvestanverðum Bandaríkjunum og allir um borð, sjö geimfarar,
fórust. Í þættinum er fjallað um hinstu ferð Kólumbíu og
rannsóknina á tildrögum slyssins sem á eftir kom.

Teilen