Anmeldung Registrierung
Erweiterte Suche
Síðari þáttur af tveimur um sögu hryðjuverkasamtakanna sem kenna
sig við Íslamskt ríki, hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði
í Írak og Sýrlandi og staðið á bak við ótal hryðjuverk um heim
allan. Í þessum síðari þætti er fjallað um það hvernig hópur
hryðjuverkamanna í Írak notfærði sér upplausnina í grannríkinu
Sýrlandi til að kveða sér hljóðs, og uppgang núverandi leiðtoga
samtakanna, Abu Bakr Al-Baghdadi, sem útnefnt hefur sjálfan sig
arftaka Múhameðs spámanns á jörðu.

Teilen