Anmeldung Registrierung
Erweiterte Suche
  1. Startseite
  2. Podcasts
  3. Í ljósi sögunnar Podcast
  4. Nauðungarflutningar á Krímtatörum
Í þættinum er fjallað um nauðungarflutningana á Krímtatörum árið
1944, en lag um þá hörmungaratburði sigraði í söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva á dögunum. Jósef Stalín sakaði Tatara á
Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla þjóðina, nærri
tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í gripalestum. Þar
beið þeirra vist í fangabúðum, og talið að allt að fjörutíu prósent
krímtatörsku þjóðarinnar hafi týnt lífi á fyrstu árunum eftir
flutninginn.

Teilen