Anmeldung Registrierung
Erweiterte Suche
  1. Startseite
  2. Podcasts
  3. Í ljósi sögunnar Podcast
  4. Nauðungarflutningarnir á Krímtatörum
Í þættinum er fjallað um sögulegan bakgrunn sigurlags Úkraínu í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í fyrra,
nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944. Þá sakaði Jósef
Stalín Tatara á Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla
þjóðina, nærri tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í
gripalestum. Þar beið þeirra vist í fangabúðum, og talið að allt að
fjörutíu prósent krímtatörsku þjóðarinnar hafi týnt lífi á fyrstu
árunum eftir flutninginn. Þátturinn var áður á dagskrá í maí í
fyrra.

Teilen