Anmeldung Registrierung
Erweiterte Suche
Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kórea varð japönsk nýlenda
í upphafi tuttugustu aldar og endalok hins aldagamla kóreska
konungsríkis. Þar kemur við sögu síðasta drottning Kóreu, Min, ein
merkilegasta kona kóreskrar sögu, sem komst til valda í karllægu
ríki með bæði kænsku og hörku, reyndi að standa uppi í hárinu á
Japönum en galt að lokum fyrir með lífi sínu. Umsjón: Vera
Illugadóttir.

Teilen